Lux veitingar voru stofnaðar af þeim Hinrik Lárussyni og Viktori Erni árið 2018. Eins og nafið gefur til kynna þá standa Lux veitingar fyrir lúxus, gæði og góða þjónustu. Við vitum að góð veisluþjónusta þarf að gera fleira en að framreiða góðan mat, þess vegna leggjum við áherslu á góða þjónustu svo þú getur treyst því að hugsað sé fyrir hverju smáatriði og hver veisla er einstök – sérsniðin að þér.
Sama hvert tilefnið er þá vitum við að þín veisla á skilið það besta. Við eldum matinn á staðnum sem tryggir ferskleika matarins. Við getum sett upp fullbúið eldhús hvar sem er og reitt fram ógleymanlega veislu sama hvort þemað er látlaus steikarveisla í óbyggðum eða smáréttahlaðborð í borðstofunni þinni – okkur er ekkert ómögulegt
Við hjá Lux veitingum erum þekktir fyrir að hugsa út fyrir kassann og saman getum við töfrað fram drauma veisluna þína.