Sælkerabúðin
Um okkur
Fyrir alla sem kunna að meta góðan mat
Um Sælkerabúðina
Sælkerabúðin býður upp á vandað úrval af gæðavörum fyrir þá sem vilja gera vel við sig og sína. Við leggjum áherslu á gott hráefni, trausta framleiðendur og vörur sem henta jafnt fyrir hversdagsmáltíðir sem og sérstök tilefni.
Hjá okkur finnur þú fyrsta flokks kjötvörur, sælkerameðlæti og fjölbreytt úrval fyrir matarboðið. Við viljum gera það einfalt að nálgast gæðavörur hvort sem þú velur að elda sjálfur eða fá vörurnar fulleldaðar og tilbúnar á borðið.
Við trúum því að góður matur snúist ekki bara um hráefni heldur líka um upplifun, samveru og augnablik í kringum matarboðið. Þess vegna leggjum við áherslu á persónulega þjónustu, áreiðanleika og gæði í hverju smáatriði.
Hvort sem þú ert að versla fyrir helgarmatinn, matarboð, gjöf eða stærri viðburð er markmið okkar að bjóða upp á vörur og þjónustu sem þú getur treyst.


Stofnandi & Matreiðslumaður
Viktor Örn Andrésson
Viktor Örn er einn virtasti matreiðslumaður Íslands. Hann hlaut titilinn kokkur ársins árið 2013, sigraði Norðurlandameistaramót matreiðslumanna árið 2014 og náði einum besta árangri íslensks matreiðslumanns þegar hann hlaut bronsverðlaun í hinni virtu matreiðslukeppni Bocuse D’or árið 2017, auk þess sem hann var um árabil í kokkalandsliðinu.
Hann byrjaði að vinna í eldhúsi 15 ára gamall, sem uppvaskari og aðstoðarmaður á Kaffi Victor, og fljótlega komst hann á námssamning hjá Hótel Sögu. Honum finnst skemmtilegast að elda góða steik, ekki síst eitthvað á beini.
Stofnandi & Matreiðslumaður
Hinrik Örn Lárusson
Þrátt fyrir ungan aldur er Hinrik Örn einn færasti matreiðslumaður landsins. Hann sigraði keppnina Kokkanemi ársins 2017 og landaði silfri á norrænu nemakeppninni árið 2018. Hann var aðstoðarmaður Viktors Arnar á Bocuse D’or keppninni árið 2017 þar sem þeir unnu til bronsverðlauna.
Hinrik var í landsliði matreiðslumeistara árið 2018 og sama ár sigraði hann Evrópukeppnina í matreiðslu. Hinrik ólst upp í bransanum, bjó á hóteli fyrstu 18 ár ævi sinnar þar sem móðir hans rak Hótel Heklu. Hann tók fyrstu kokkavaktirnar 15 ára og fór á nemasamning hjá Hótel Sögu 17 ára.

Gæði skipta okkur máli
Vandað úrval
Við veljum allar okkar vörur með áherslu á gæði og gott hráefni
Þjónusta
Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu, ánægjulega upplifun og gott úrval
Öll tilefni
Hvort sem það er helgarmaturinn, matarboð eða gjöf, þá færðu matinn hjá okkur
