Sælkerabúðin
Persónuverndarstefna
Persónuverndarstefna Sælkerabúðarinnar
Persónuverndarstefna
Sælkerabúðinni er umhugað um persónuvernd og öryggi gagna sem fyrirtækið meðhöndlar. Í persónuverndarstefnu Sælkerabúðarinnar kemur fram í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað og hvernig farið er með slík gögn.
Markmið okkar er að viðskiptavinir, samstarfsaðilar og aðrir einstaklingar séu upplýstir um hvernig fyrirtækið safnar og vinnur persónuupplýsingar.
Lux Veitingar ehf., kt. 5212181260, Kinnargötu 13, er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem veittar eru fyrirtækinu. Hægt er að senda skriflega fyrirspurn til fyrirtækisins um meðferð persónuupplýsinga á netfangið Info@saelkerabudin.is.
Hvað eru persónuupplýsingar?
Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar um hinn skráða, þ.e. upplýsingar sem beint eða óbeint má rekja til tiltekins einstaklings, samkvæmt skilgreiningu persónuverndarlaga. Gögn sem eru ópersónugreinanleg teljast ekki persónuupplýsingar.
Um meðferð Sælkerabúðarinnar á persónuupplýsingum fer samkvæmt gildandi lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma hér á landi.
Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga
Sælkerabúðin safnar persónuupplýsingum um viðskiptavini sína til að veita þeim aðgang að vörum og þjónustu í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga, til að tryggja að þjónusta sé löguð að þeirra þörfum og til að miðla til þeirra upplýsingum í markaðslegum tilgangi.
Markmiðið með upplýsingasöfnun er fyrst og fremst til þess að þjónusta viðskiptavini betur og aðlaga og bæta upplifun þeirra af þjónustu Sælkerabúðarinnar.
Sælkerabúðin safnar einungis persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita viðeigandi þjónustu hverju sinni.
Kjósi viðskiptavinur að veita ekki persónuupplýsingar er möguleiki á að Sælkerabúðin geti ekki útvegað viðkomandi aðila vörur eða veitt þjónustu. Sælkerabúðin nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar fyrir. Gögn eru geymd eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslu og skilmála samninga, nema þegar lög og reglur kveða á um lengri geymslutíma.
Viðskipti einstaklinga
Sælkerabúðin safnar upplýsingum um viðskiptavini sína í tengslum við einstök viðskipti. Þannig safnar Sælkerabúðin m.a. samskiptaupplýsingum viðskiptavina, upplýsingum um þá vöru og/eða þjónustu sem keypt er, t.d. vörunúmer og verð.
Gerist viðskiptavinur brotlegur kann að vera unnið með upplýsingar um brot á grundvelli lögmætra hagsmuna fyrirtækisins. Þá kunna brot að vera tilkynnt til lögreglu.
Póstlisti
Sælkerabúðin vinnur með tölvupóstfang, sem einstaklingur hefur skráð og samþykkt notkun á fyrirfram, í útsendingum á markpósti til einstaklinga á póstlista fyrirtækisins.
Enn fremur getur einstaklingur skráð upplýsingar eins og t.d. nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og kyn. Þá er óskað eftir samþykki til þess að vinna með upplýsingar um kaup hans á vörum og þjónustu Sælkerabúðarinnar í því skyni að stunda markaðssetningu á vörum og þjónustu Sælkerabúðarinnar.
Með skráningu þessara valkvæðu upplýsinga samþykkir einstaklingur að Sælkerabúðin megi samkeyra upplýsingar um hann úr öðrum viðskiptakerfum fyrirtækisins, s.s. sölukerfi og CRM-kerfi, til þess að geta veitt betri þjónustu og sent út einstaklingsmiðuð skilaboð.
Þessi vinnsla byggir á samþykki og er einstaklingi alltaf heimilt hvenær sem er að afturkalla samþykki sitt og afskrá sig af póstlista fyrirtækisins með því að ýta á þar til gerðan hlekk í markpóstum, eða senda póst á netfangið Info@saelkerabudin.is.
Forsvarsmenn fyrirtækja og stofnana
Komi einstaklingur fram fyrir hönd samstarfsaðila Sælkerabúðarinnar, s.s. birgja, verktaka eða viðskiptamann sem er lögaðili, kann Sælkerabúðin að vinna með tengiliðaupplýsingar hans, s.s. nafn, símanúmer og tölvupóstfang.
Þá kann Sælkerabúðin að vinna með samskiptasögu og eftir atvikum reikningsupplýsingar. Þessi vinnsla er fyrirtækinu nauðsynleg til að geta uppfyllt skyldur sínar á grundvelli samnings við viðkomandi samstarfsaðila. Þá kann fyrirtækinu að vera skylt að vinna með slíkar upplýsingar á grundvelli lagaskyldu, s.s. bókhaldslaga.
Ábendingar og/eða athugasemdir frá viðskiptavinum
Ef einstaklingur sendir inn ábendingu eða kvörtun mun Sælkerabúðin almennt vinna með samskiptaupplýsingar hans, s.s. nafn og netfang, og efni þeirrar kvörtunar eða ábendingar sem hann hefur kosið að koma á framfæri.
Upplýsingar eru geymdar eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslu.
Miðlun persónuupplýsinga
Sælkerabúðin nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar í. Sælkerabúðin miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema að fengnu samþykki, í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga, á grundvelli lögmætra hagsmuna fyrirtækisins eða á grundvelli lagaskyldu.
Sælkerabúðin áskilur sér rétt til að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila) sem er þjónustuveitandi, umboðsmaður eða verktaki Sælkerabúðarinnar í þeim tilgangi að veita þjónustu sem beðið hefur verið um.
Sælkerabúðin deilir upplýsingum, í tölfræðilegum tilgangi, með vinnsluaðilum sem vinna með fyrirtækinu við gæða- og markaðsstarf. Sælkerabúðin afhendir vinnsluaðilunum einungis þær persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir þá í framangreindum tilgangi og gerður er við þá samningur þar sem þeir undirgangast skyldu um að halda upplýsingum um einstaklinga öruggum og nota þær einungis í framangreindum tilgangi.
Allir vinnsluaðilar Sælkerabúðarinnar og samstarfsaðilar hafa undirritað viðeigandi trúnaðaryfirlýsingu og vinnslusamning í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga.
Sælkerabúðin leigir aldrei eða selur persónuupplýsingar um viðskiptavini.
Öryggi gagna
Sælkerabúðin leggur áherslu á að tryggja að varðveislu persónuupplýsinga sé háttað á öruggan hátt, að viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir séu gerðar til að tryggja mesta öryggi gagna hverju sinni.
Þessum ráðstöfunum er ætlað að vernda persónuupplýsingar gegn því að þær glatist eða breytist fyrir slysni og gegn óleyfilegum aðgangi, afritun, notkun eða miðlun þeirra.
Öll samskipti við vefþjóna Sælkerabúðarinnar eru dulkóðuð yfir öruggar vefslóðir (HTTPS).
Réttindi þín
Einstaklingur á rétt á og getur óskað eftir að Sælkerabúðin veiti honum upplýsingar um þær persónuupplýsingar sem fyrirtækið býr yfir sem og um vinnslu og meðferð upplýsinga um hann. Þá kann einnig að vera að einstaklingur hafi rétt á að fá afrit af upplýsingunum.
Við ákveðnar aðstæður getur einstaklingur farið fram á það við fyrirtækið að fyrirtækið sendi upplýsingar, sem hann hefur sjálfur látið fyrirtækinu í té eða stafa frá honum, beint til þriðja aðila.
Einstaklingur á rétt á því í vissum tilvikum að persónuupplýsingar um hann séu leiðréttar eða þeim eytt, t.d. ef upplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar í þágu þess tilgangs sem þeirra var upphaflega aflað.
Vafrakökur (cookies)
Vafrakökur eru upplýsingar sem vefforrit neytanda geymir í tölvu hans að beiðni netþjóna. Sælkerabúðin notar þessar upplýsingar m.a. til að bera kennsl á notandann og vita hversu oft hann heimsækir vefsíðuna/vefverslunina, hvað neytandi setur í körfuna sína, hvernig fyrri pantanir neytanda voru og til að kynna neytanda fyrir vörum sem gætu vakið áhuga.
Vafrakökurnar eru hannaðar til að þjóna þörfum neytanda og notar Sælkerabúðin vafrakökur aðallega til að gera vefsíðuna og vefverslunina ánægjulegri í notkun fyrir neytandann og bæta upplifun hans.
Sumar vafrakökurnar eru tímabundnar og hverfa því þegar notandinn fer af vefsvæðinu en aðrar haldast lengur inni. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notandans og muna val og/eða aðgerðir hans á vefsvæðinu.
Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir taka sjálfvirkt við vafrakökum en hægt er að stilla þá þannig að neytandi þurfi að samþykkja hvert tilvik. Enda þótt neytandi kjósi að leyfa ekki vafrakökur getur hann samt sem áður notað nánast alla hluti vefsíðu Sælkerabúðarinnar, þar á meðal verslunarkerfið.
Sælkerabúðin notar Google Analytics og Facebook Pixel til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefsvæðið eru ýmsum nafnlausum upplýsingum safnað saman, t.d. frá hvaða vefsvæði er komið, tími og dagsetning komu á vefsvæðið, leitarorð sem notað var og gerð vafra og stýrikerfis.
Með því að nota vefverslun Sælkerabúðarinnar samþykkir neytandi að Sælkerabúðin safni upplýsingum sjálfkrafa með vafrakökum. Nánari upplýsingar varðandi eyðingu eða stjórn á vafrakökum er að finna á aboutcookies.org.uk.
Endurskoðun stefnu
Persónuverndarstefna Sælkerabúðarinnar er endurskoðuð reglulega og stefna fyrirtækisins er að vera eins skýr og berorð um hvernig fyrirtækið safnar persónuupplýsingum og í hvaða tilgangi upplýsingarnar eru notaðar.
Sælkerabúðin áskilur sér rétt til þess að breyta persónuverndarstefnunni hvenær sem er, án fyrirvara.
Allar fyrirspurnir um meðhöndlun persónuupplýsinga og persónuverndarstefnu Sælkerabúðarinnar skal senda á netfangið Info@saelkerabudin.is eða í síma 578-2255.
Þessi persónuverndarstefna var sett þann 20. apríl 2020.
