Við erum ekki feimnir að sýna taktana í eldhúsinu, okkur langar að kynnast þér og veita persónulega þjónustu í mat og drykk. Þess vegna höfum við skapað þetta einstaka umhverfi þar sem tilvalið er að hittast með vinafólki eða vinnufélögum og upplifa mat og drykk eins og hann gerist bestur.
„Taktu með þér vinahópinn eða vinnufélagana í kvöldverð í eldhúsinu okkar. Við bjóðum upp á matarupplifun í einstöku umhverfi í Sælkerabúðinni.“
Við bjóðum einnig upp á fundaraðstöðu og aðrar lausnir fyrir fyrirtæki, heyrðu í okkur fyrir nánari upplýsingar!