Við elskum góða kokteila, þess vegna höfum við sett saman skemmtilegt námskeið í kokteilagerð.
Á námskeiðinu er farið yfir vinsælustu kokteilana í dag ásamt því að para við í mat
Innifalið í námskeiðinu.
Uppskriftir & leiðbeiningar. 5 rétta smárétta matseðill.
Við elskum góð vín þess vegna höfum við sett saman skemmtilegt námskeið í að para mat & vín saman.
Vínþjónninn okkar Manuel Schembri sem kemur frá Möltu & matreiðslumeistarar Lux Veitinga hafa sett saman 5 rétta matseðil sem verður paraður með hágæða vínum.
Á námskeiðinu er farið nánar í hvert vín ásamt því að para þau við mat. Athugið að vínfræðslan fer fram á ensku
Innifalið í námskeiðinu.
Punktar um vínin sem við erum að para með. 5 rétta matseðill með vínpörun.